In the woods there are killers

Jæja kæru vinir og vandamenn (vandamenn? aldrei mun ég skilja þennan) Nú er svo komið að þann 31. jan er ég að fara að læra að búa til tónlist, já, ég hef reynt í að verða fjögur ár að moða einhverju efni saman en það virðist sem það gangi ekki nógu vel þegar maður veit ekki almennilega hvað maður er að gera, enter...THE NÁMSKEIÐ!

 

Það sem er að gerast núna hjá mér er minna en fátt, ég er að fara að missa af tónleikum sem ég vildi gjarnan sjá af því ég er á Akureyri, ég vinn í vinnu þar sem ofursýklar gera mann veikari fyrir að smitast af kvefi og sýkingum og allskonar óþverra og ég er farin að finna fyrir því, ég er rétt aðeins byrjuð að taka upp úr kössum af því mér finnst það eitthvað svo gagnslaust þegar ég veit að ég er að fara að flytja aftur og síðast en ekki síst... Ég er fullorðnari manneskja hér heldur en ég er fyrir sunnan, and I don't know if I like it...mér var ekki ætlað að fullorðnast neitt að ráði.

 

 

Ó Reykjavík...I do so miss you! Ég held ég hafi alltaf verið meiri borgarstelpa en ég vildi viðurkenna þó að "sveitin" sé alltaf sveipuð vissum töfraljóma fyrir mér, ég virka bara ekki eins án hringiðunnar og hávaðans. Það er alltaf eitthvað að gerast í Reykjavík, þó að ég sé ekki alltaf að gera eitthvað þar. Svo sakna ég líka þess að fara eitthvað gott út að borða!

 

Sakna þess að fara í göngutúr á Seltjarnarnesinu þar sem hinir undarlegustu hlutir geta átt sér stað, best er að hafa sápukúlur með í för og horfa á sólina setjast og labba svo heim í myrkrinu...kannski rekst maður á stjörnur á sveimi.

 

Sakna Unu líka, never has there been a more patient and wonderful meðleigjandi :) I hope we can find something affordable and nice soon enough...I'm not staying here forever.

 

 

En já, nóg af væmnu væli í bili...ég er farin í sturtu...kannski tekst mér að taka eitthvað upp úr kössum í dag ef ég er dugleg stelpa, ef ekki then fuck it all, þá horfi ég bara á sjónvarp eða eitthvað.

 

Adieu, Vous petit Chocolate Blonde.  (Ok ég er STRAX byrjuð að gleyma franskri málfræði og það er varla liðinn meira en mánuður síðan ég fékk 9 í frönsku.)

P.s. Titillinn á þessu bloggi er vísun í hið yfirgengilega lag "Woodland of Killers" Sem yours truly er að dufla í að semja ;) But nothing shall ever beat "In the ossuary" haha oh dear grace.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ok don't take this wrong en þegar ég sá þetta Woodland Killers dæmi þá datt mér strax í hug "Killer in the park, hiding in the dark"  újé! hehehe

Marta A (IP-tala skráð) 29.1.2007 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Il Mio Quinto Senso e Mezzo

Höfundur

Valdís Alexía Cagnetti
Valdís Alexía Cagnetti
I am the perfect bastard

Bækur

Bækur

Nokkrar af mínum uppáhalds...það breytist samt mjög oft.

  • Bók: Brennu-Njáls Saga
    ...: Brennu-Njáls Saga
    Þetta er önnur skyldulesningarbók í íslensku sem mér fannst mjög áhugaverð og hreint út sagt skemmtileg. Það verða allir íslendingar að lesa hana...bókstaflega...hahaha!
    *****
  • Bók: The Three Musketeers
    Alexandre Dumas: The Three Musketeers
    Þessa bók las pabbi minn fyrir mig á tímabilinu 12-14 ára, nokkra kafla alltaf þegar ég kom til hans á sumrin. Þarna var hann kominn með krabbamein og var svo hás að hann hljómaði eins og sjóræningi með kvef en honum þótti bara svo vænt um að fá að lesa fyrir mig að hann neitaði að gefast upp. Já, ég á ljúfar minningar af þessari bók en það er ekki eina ástæðan fyrir að hún er í uppáhaldi heldur er þetta barasta snilldar vel skrifað og maður festist alveg í henni þegar maður er byrjaður. Spennandi og ævintýraleg, einfaldlega allt það besta í einni bók.
    *****
  • Bók: Kristnihald Undir Jökli
    Haldór Laxness: Kristnihald Undir Jökli
    Ein af örfáum skyldulesningabókum í íslensku sem mér fannst virkilega þess virði að lesa. Mér fannst hún góð og hana nú.
    *****
  • Bók: Like the Flowing River
    Paulo Coelho: Like the Flowing River
    Aldrei á ævinni hef ég orðið fyrir jafn miklum og sýnilegum áhrifum út af einni bók. Eftir þessa bók var ég bara svo hooked á Paulo að ég varð að skrifa honum e-mail og þakka honum innilega fyrir að hafa skrifað hana. Hann svaraði mér meira að segja og var mjög almennilegur og nice. Og ef þið lesið his biography þá er það ekkert lítið sem þessi maður hefur gengið í gegn um. Það er æðislegt að geta lesið svona innblásna bók eftir mann sem er virkilega lífsreyndur. Það besta við þessa bók er að manni finnst aldrei talað niður til manns þegar maður les þau ráð sem höfundurinn gefur. Þessi náði beint að hjartarótum og ég ætla mér að lesa hana svona 200.000 sinnum í viðbót, helst oftar :)
    *****
  • Bók: The Picture of Dorian Grey
    Oscar Wilde: The Picture of Dorian Grey
    Þetta er bara frábær bók enda er Oscar Wild í miklu uppáhaldi hjá mér bæði sem rithöfundur og manneskja. :)
    *****

Bloggvinir

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Spurt er

Hvernig ertu?

Fólk

Vinir mínir

Hér eru nokkrir af nánustu vinum mínum, lesið það sem þeir hafa að segja!

Ég á öðrum bloggum

Hér er að finna önnur blogg þar sem ég held til, manneskja með svona marga persónuleika getur ekki látið sér nægja eitt blogg.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlist

Video

  • Christina D'Avena - KOR - Sigla-Johnny è quasi magia
    La sigla che ti da i brividi. KOR was so one of my many favorites back in the day and this is the beautiful theme song that I loved when I was itty bitty and it still stays with me as a gazillion other italian kids.
    *****


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband