Simmer Down....

 Mood: Gritty, Rowdy and Energetic

Music: Break Up- Bastards of Melody

Favorite: My boxing gloves, gotta love em.

Vá....þessi dagur hefur farið í ekki neitt.

 

Ég ætlaði að vera geggjað dugleg og vakna sko bara klukkan 11 í morgun, en þegar klukkan hringdi kl nákvæmlega 11 þá var ég bara ennþá að reyna að sofna Undecided which totally sucked ass. Þannig að ég var bara að drulla mér á lappir klukkan þrjú og er svo bara búin að hanga í tölvunni og eitthvað síðan þá.

 

Ég er ennþá að reyna að ákveða hvort ég eigi að fara á þetta blessaða rejúníon með gamla góða bekknum mínum, en málið er einfaldlega það að ég veit ekki alveg hvort það sé þess virði, þetta kostar nefnilega slatti mikið og ég hef ekki beint verið dugleg að halda sambandi við þetta fólk í gegn um tíðina þannig ég veit ekki alveg hvernig þetta verður.

 

Margt spennandi að gerast núna, ég var að taka stóra ákvörðun sem viðkemur viðskiptum, ég er nefnilega búin að vera í all stórkostlegum pælingum og það getur bara vel verið að ég fari að skella mér út í business á næstunni. Þá kannski hættir fólk að hafa áhyggjur af því að maður ætli sér ekki að gera neitt í lífinu eða eitthvað.

 

Fyrrr má nú aldeilis vera paranoian í fólki ef maður er ekki alltaf hreint í vinnu. Ég ætlaði nú bara að taka mér frí í sumar og hef alveg fullkomlega efni og tök á því og samt eru allir í panik yfir að ég sé ekki að vinna, allt í einu er maður bara stimplaður sem einhver atvinnulaus moocher og letihaugur! Ég er nú bara 21 árs og ef ég má ekki skoða heiminn og skemmta mér núna...hvenær þá? Þegar ég verð á grafarbakkanum og hef ekki lengur heilsu til neins? Held nú síður!

 

Annars hef ég skoðað slatta af auglýsingum en það er bara ekkert í boði sem ég hef áhuga á, nema þá framtíðarstörf og ég get ekkert farið að sækja um starf á þeim forsendum þar sem ég verð ekki mikið lengur hér en þangað til í lok ágúst. Þannig að ég hef það bara fínt svona í bili og passa mig bara aðeins á eyðslunni, síðan ef þetta businessplan mitt fer í gang þá bara fínt mál.

 

Jæja, ég ætla að fara að taka úr þvottavélinni og þvo meiri þvott, af því ég er svo dugleg. Svo er Títan mín farin að garga: "DIDDDAAAAAAAA!!!!!!!!"  og þar með er ég farin.

 

Ciao! Chocolate Blonde on a quest for human sanity.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sandra Grettisdóttir

Jahá! Do tell?

Sandra Grettisdóttir, 2.6.2007 kl. 18:34

2 identicon

Tell me about it! Það skilur greinilega enginn hugtakið að "lifa lífinu" og þetta hugtak "framtíðarstarf" ég hef annað og meira með framtíðina að gera!!

Una (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 17:37

3 identicon

Fólk er af flippa yfir atvinnuleysinu þínu því eins og amk minn árgangur, þá fékk maður að slæpast og "skoða heiminn" til ca 16 ára aldurs og svo tók alvaran við, enda eru það störfin frá þeim aldri sem fara skipta máli á starfsumsókn og sem munu hafa áhrif í laaangann tíma. Fólk bara þekkir ekki þann lúxus að geta leyft sér svona chill á þínum aldri og fólk sem tuðar yfir því (eins og ég hehe) það er bara vottur af afbrýðusemi! But your mind is never at ease, þú ert alls ekki stefnulaus í lífinu og mér líst vel á your buisness mind :-)

Soffía the wise one... (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Il Mio Quinto Senso e Mezzo

Höfundur

Valdís Alexía Cagnetti
Valdís Alexía Cagnetti
I am the perfect bastard

Bækur

Bækur

Nokkrar af mínum uppáhalds...það breytist samt mjög oft.

  • Bók: Brennu-Njáls Saga
    ...: Brennu-Njáls Saga
    Þetta er önnur skyldulesningarbók í íslensku sem mér fannst mjög áhugaverð og hreint út sagt skemmtileg. Það verða allir íslendingar að lesa hana...bókstaflega...hahaha!
    *****
  • Bók: The Three Musketeers
    Alexandre Dumas: The Three Musketeers
    Þessa bók las pabbi minn fyrir mig á tímabilinu 12-14 ára, nokkra kafla alltaf þegar ég kom til hans á sumrin. Þarna var hann kominn með krabbamein og var svo hás að hann hljómaði eins og sjóræningi með kvef en honum þótti bara svo vænt um að fá að lesa fyrir mig að hann neitaði að gefast upp. Já, ég á ljúfar minningar af þessari bók en það er ekki eina ástæðan fyrir að hún er í uppáhaldi heldur er þetta barasta snilldar vel skrifað og maður festist alveg í henni þegar maður er byrjaður. Spennandi og ævintýraleg, einfaldlega allt það besta í einni bók.
    *****
  • Bók: Kristnihald Undir Jökli
    Haldór Laxness: Kristnihald Undir Jökli
    Ein af örfáum skyldulesningabókum í íslensku sem mér fannst virkilega þess virði að lesa. Mér fannst hún góð og hana nú.
    *****
  • Bók: Like the Flowing River
    Paulo Coelho: Like the Flowing River
    Aldrei á ævinni hef ég orðið fyrir jafn miklum og sýnilegum áhrifum út af einni bók. Eftir þessa bók var ég bara svo hooked á Paulo að ég varð að skrifa honum e-mail og þakka honum innilega fyrir að hafa skrifað hana. Hann svaraði mér meira að segja og var mjög almennilegur og nice. Og ef þið lesið his biography þá er það ekkert lítið sem þessi maður hefur gengið í gegn um. Það er æðislegt að geta lesið svona innblásna bók eftir mann sem er virkilega lífsreyndur. Það besta við þessa bók er að manni finnst aldrei talað niður til manns þegar maður les þau ráð sem höfundurinn gefur. Þessi náði beint að hjartarótum og ég ætla mér að lesa hana svona 200.000 sinnum í viðbót, helst oftar :)
    *****
  • Bók: The Picture of Dorian Grey
    Oscar Wilde: The Picture of Dorian Grey
    Þetta er bara frábær bók enda er Oscar Wild í miklu uppáhaldi hjá mér bæði sem rithöfundur og manneskja. :)
    *****

Bloggvinir

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Spurt er

Hvernig ertu?

Fólk

Vinir mínir

Hér eru nokkrir af nánustu vinum mínum, lesið það sem þeir hafa að segja!

Ég á öðrum bloggum

Hér er að finna önnur blogg þar sem ég held til, manneskja með svona marga persónuleika getur ekki látið sér nægja eitt blogg.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlist

Video

  • Christina D'Avena - KOR - Sigla-Johnny è quasi magia
    La sigla che ti da i brividi. KOR was so one of my many favorites back in the day and this is the beautiful theme song that I loved when I was itty bitty and it still stays with me as a gazillion other italian kids.
    *****


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband