I laugh in the face of danger...

 

 

 

Jamm það fékk sko að reyna á það núna um daginn. Við fórum nefnilega með Linda frænda að járna hestana, þegar við komum var búið að járna alla nema Venus og  Tvist, Tvistur er sko eldgamall ævaforn hestur en hann leynir alvarlega á sér. Allavega þá var Lindi að snyrta hófana á henni Venus og Alli héllt henni á meðan Svava hélt honum Tvist, ég sá alveg á honum að hann var óstyrkur greyið gamli, en Svava virtist hafa róandi áhrif á hann.

 

Ekkert meira með það nema Svava þurfti að skreppa frá þannig ég hélt við Tvist á meðan hún var í burtu og ég sá að hann varð strax órólegri þegar hún fór. Svo kom svava aftur og Tvistur róaðist aðeins. Nema hvað, Svava segir við Alla að hún hafi þurft að hringja í vinnuna og segja að sér seinkaði því hún ætlaði í heita pottinn eftir járningarnar til að lykta ekki eins og hross í vinnunni. Hann sagði henni þá bara að fara núna og að ég gæti haldið Tvist á meðan þeir kláruðu að járna Venus.  Ég tók við Tvist á þá fór nú aldeilis að hitna í kolunum.

 

Fyrst var Tvistur bara óstyrkur og nuddaði sig mikið bæði við mig og tréverkið, hann var að reyna að losa af sér múlinn en ég ýtti honum bara þar sem hann átti að vera og reyndi svo að tala við hann og klappa honum til að hann róaðist. Hann var þó ekki alveg á því að róast niður og tók svo bara upp á því að prjóna, mér dauðbrá þegar hófarnir voru komnir uppá trégrindina og ýtti þeim aftur (og fékk komment á hvort ég væri orðin brjáluð...ég vildi bara losna við danglandi hófa frá andlitinu á mér!) svo prjónaði hann aftur, þáýtti ég honum rækilega aftur og gerði eins og Alli sagði mér að gera, vafði tauminn tvisvar utan um stálránna og hafði hann eins nálægt með hausinn og hægt var...það var ekki SJÉNS að hann gæti prjónað, nema hvað...þetta ÞRJÓSKA HROSS ákveður að prjóna bara samt, hann sleit tauminn og munaði minnstu að hann sparkaði í hausinn á mér og handleggin, ég rétt náði að forða mér.

 

Þegar hér var komið sögu ákváðum ég og Alli að skipta og hann hélt Tvist á meðan Lindi kláraði að járna Venus en ég hélt við hana á meðan. Ég elska Venus, hún er rólegasti hestur í heimi. Bærði varla á sér á meðan á þessu stóð.

 

Allavega náðum við að klára að járna venus og ég ætlaði svo bara að halda henni á meðan Alli og Lindi frændi bisuðu við að snyrta og járna Tvist. Nema hvað, það var bara ekkert hægt að járna Tvist, hann prjónaði og sparkaði og hoppaði og lét öllum illum látum, að endingu vafði Alli tauminn tvisvar um slánna eins og ég gerði, nema hvað, einvhern veginn tókst Tvist að kippa það fast í tauminn að hann dróst út og þannig fékk hann nóg pláss til að prjóna og sparka í hausinn á Alla.

 

 Það fór að fossblæða úr nefinu á honum og ég get svo svarið að ég hef sjaldan verið jafn hrædd...ég hélt að það væri að blæða frá heilanum á honum eða eitthvað af því ég sá aldrei hófana fara nálægt nefinu á Alla, bara í hausinn. En krafturinn í högginu var víst nóg til að það sprakk æð í nefinu á honum en það er í lagi með hann og ég er bara með smá rispu á hendinni þar sem hófurinn á Tvist rétt náði að strjúkast við. Eftir þetta var ekki reynt neitt frekar að járna Tvist...óþekki hestur.

Hehe, annars er mest lítið að frétta héðan, ég er farin að hlakka svo mikið til að komast á hestbak. Una kemur á morgun, ég sækji hana á flugvöllinn kl. 12:00 og það verður gaman. Erla og Tryggvi eru hér enn en ég held þau fari á morgun. Þau buðu okkur út að borða á Greifann í dag....that was wonderfully wonderful and I ate toooooo much. Afi bauðst til að kaupa fartölvu handa mér en ég sendi honum e-mail og reyndi eftir mætti að segja honum að ég geti vel keypt mér fartölvu sjálf eftir svona 3-4 mánuði...það er ekki svo langt. Ég efast samt um að hann muni hlusta á mig.

 Jamm....það eru bara engar aðrar fréttir af mér.

Hit me up if you wanna chat...drunken hen cuddle, tootles Choccie Blondie.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sandra Grettisdóttir

Hæ, guess what? Afmælisgjöfin þín er loksins tilbúin! Hvenær viltu svo fá hana? Ég verð ekki heima um helgina út af ættarmótinu.. Svo það er bara í kvöld og eftir helgi.

Sandra Grettisdóttir, 28.6.2007 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Il Mio Quinto Senso e Mezzo

Höfundur

Valdís Alexía Cagnetti
Valdís Alexía Cagnetti
I am the perfect bastard

Bækur

Bækur

Nokkrar af mínum uppáhalds...það breytist samt mjög oft.

  • Bók: Brennu-Njáls Saga
    ...: Brennu-Njáls Saga
    Þetta er önnur skyldulesningarbók í íslensku sem mér fannst mjög áhugaverð og hreint út sagt skemmtileg. Það verða allir íslendingar að lesa hana...bókstaflega...hahaha!
    *****
  • Bók: The Three Musketeers
    Alexandre Dumas: The Three Musketeers
    Þessa bók las pabbi minn fyrir mig á tímabilinu 12-14 ára, nokkra kafla alltaf þegar ég kom til hans á sumrin. Þarna var hann kominn með krabbamein og var svo hás að hann hljómaði eins og sjóræningi með kvef en honum þótti bara svo vænt um að fá að lesa fyrir mig að hann neitaði að gefast upp. Já, ég á ljúfar minningar af þessari bók en það er ekki eina ástæðan fyrir að hún er í uppáhaldi heldur er þetta barasta snilldar vel skrifað og maður festist alveg í henni þegar maður er byrjaður. Spennandi og ævintýraleg, einfaldlega allt það besta í einni bók.
    *****
  • Bók: Kristnihald Undir Jökli
    Haldór Laxness: Kristnihald Undir Jökli
    Ein af örfáum skyldulesningabókum í íslensku sem mér fannst virkilega þess virði að lesa. Mér fannst hún góð og hana nú.
    *****
  • Bók: Like the Flowing River
    Paulo Coelho: Like the Flowing River
    Aldrei á ævinni hef ég orðið fyrir jafn miklum og sýnilegum áhrifum út af einni bók. Eftir þessa bók var ég bara svo hooked á Paulo að ég varð að skrifa honum e-mail og þakka honum innilega fyrir að hafa skrifað hana. Hann svaraði mér meira að segja og var mjög almennilegur og nice. Og ef þið lesið his biography þá er það ekkert lítið sem þessi maður hefur gengið í gegn um. Það er æðislegt að geta lesið svona innblásna bók eftir mann sem er virkilega lífsreyndur. Það besta við þessa bók er að manni finnst aldrei talað niður til manns þegar maður les þau ráð sem höfundurinn gefur. Þessi náði beint að hjartarótum og ég ætla mér að lesa hana svona 200.000 sinnum í viðbót, helst oftar :)
    *****
  • Bók: The Picture of Dorian Grey
    Oscar Wilde: The Picture of Dorian Grey
    Þetta er bara frábær bók enda er Oscar Wild í miklu uppáhaldi hjá mér bæði sem rithöfundur og manneskja. :)
    *****

Bloggvinir

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Spurt er

Hvernig ertu?

Fólk

Vinir mínir

Hér eru nokkrir af nánustu vinum mínum, lesið það sem þeir hafa að segja!

Ég á öðrum bloggum

Hér er að finna önnur blogg þar sem ég held til, manneskja með svona marga persónuleika getur ekki látið sér nægja eitt blogg.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlist

Video

  • Christina D'Avena - KOR - Sigla-Johnny è quasi magia
    La sigla che ti da i brividi. KOR was so one of my many favorites back in the day and this is the beautiful theme song that I loved when I was itty bitty and it still stays with me as a gazillion other italian kids.
    *****


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband