Jahá...

Jámm, ég held ég geri það að reglu að blogga ekki fyrr en ég er búin að fá a.m.k 4 komment takk fyrir. Það er hundleiðinlegt að halda úti bloggi til einskins, fyrir utan að ég er ekki alveg að fíla þetta blogg hérna af einhverjum ástæðum. But that's beside the point.

 

Það sem hefur gerst so far:

 

www.innkaup.net er tilbúið og komið í gang, við eigum eftir að setja upp örlítið meira extensive auglýsinga herferð þar sem við höfum lítið sem ekkert auglýst eins og stendur. Um leið og þetta er farið að rúlla er næsta skref...Snyrtivörurnar, jamm af því að við erum að fara að flytja inn þannig við þurfum að ganga frá samningum etc. En þetta er allt á réttri leið hægt og rólega.  

 

Það eina sem vantar as per usually eru peningar...en það eru ýmsar reddingar í gangi og ég hef hingað til haldið mér frá því að lenda í skuld þannig ég er að vona að fyrirtækið fari að græða mikið mikið mjög fljótlega, það er svolítið erfitt að fá sér vinnu meðfram þessu fyrst þetta er komið í gang af því að maður þarf alltaf að vera tiltækur og stökkva til og ganga í allt bara eins og stendur, en það breytist líka um leið og þetta fer að rúlla og við höfum efni á að ráða meira fólk og svona.

 

Hvað örðu líður þá er ég komin með regular workout plan aftur og það hentar mér mjög vel, er aðeins byrjuð að synda aftur líka en ekki daglega samt eins og áður af því að mér líkar ekki vel að lykta eins og klór :( Ég fékk ryksugu og það er bara gott þar sem ég get loksins losað mig við nokkur kg af kattarhárum sem hafa hangið í íbúðinni minni seinustu 3-4 mánuði *jukk* og svo gaf elsku Harpa mér heimasíma í afmælisgjöf þannig minns er bara vel sáttur. TAKK ELSKAN MÍN OG FARÐU SVO AÐ HRINGJA Í MIG...ÉG VEIT EKKERT HVORT SÍMINN ÞINN SÉ TENGDUR!!!!!

 

Seinasta miðvikud. komu mamma, Ómar og títan mín littla í heimsókn og það var mikið stuð, amma var með í för en það vildi svo illa til að hún varð sárlasin á leiðinni heim og varð til þess að hún fór beint upp á spítala en á víst að losna á morgun.  Þetta var náttúrulega extra ömurlegt af því að hún átti afmæli og eyddi deginum á spítala :(

 

Jæja, ég hef ekkert að segja meira nema að ég fer líklega bráðum að senda inn umsókn hjá háskólanum og að það verður líklega enn frekar langt í að ég komist eitthvað norður...which sucks cause I miss Akureyri a lot...a LOT!!!!!!! En jámm svona er þetta.

 

Heyrumst næst eftir minnst 4 komment! 

toots, choccie blonde. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.4.2008 kl. 01:38

2 identicon

Þú ert allavega komin með þrjú komment só far, ok tvö eru bara broskallar frá einhverju fólki sem þú þekkir ekki en það er þá greinilega fólk sem hefur gaman af því að fylgjast með þér þótt það vilji ekki kynna sig...

Anyways... verður endilega að fara kíkja oftar í heimsókn, við mæðgin erum ein heima eftir kl 15 þessa dagana (Jóhann er á kvöldvöktum) svo við erum sko alveg til í að fá smá company :D Bjallaðu bara á undan þér.

Soffía (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 21:27

3 identicon

Jæja nú er sko sannarlega komin tími á næsta blogg.  Ég er nefnilega nr. 4 ef þú hefur ekki tekið eftir því.  Væri gaman að fá nánari fréttir af bissnessnum og svo auðvitað vekja framtíðaplön um háskólaumsókn alltaf áhuga, hvað verður fyrir valinu?? sálfræði? viðskipti? tungumál? eða eitthvað allt annað spennandi???

bless í bili ljúfust

mammsa.

Guðrún S. Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Il Mio Quinto Senso e Mezzo

Höfundur

Valdís Alexía Cagnetti
Valdís Alexía Cagnetti
I am the perfect bastard

Bækur

Bækur

Nokkrar af mínum uppáhalds...það breytist samt mjög oft.

  • Bók: Brennu-Njáls Saga
    ...: Brennu-Njáls Saga
    Þetta er önnur skyldulesningarbók í íslensku sem mér fannst mjög áhugaverð og hreint út sagt skemmtileg. Það verða allir íslendingar að lesa hana...bókstaflega...hahaha!
    *****
  • Bók: The Three Musketeers
    Alexandre Dumas: The Three Musketeers
    Þessa bók las pabbi minn fyrir mig á tímabilinu 12-14 ára, nokkra kafla alltaf þegar ég kom til hans á sumrin. Þarna var hann kominn með krabbamein og var svo hás að hann hljómaði eins og sjóræningi með kvef en honum þótti bara svo vænt um að fá að lesa fyrir mig að hann neitaði að gefast upp. Já, ég á ljúfar minningar af þessari bók en það er ekki eina ástæðan fyrir að hún er í uppáhaldi heldur er þetta barasta snilldar vel skrifað og maður festist alveg í henni þegar maður er byrjaður. Spennandi og ævintýraleg, einfaldlega allt það besta í einni bók.
    *****
  • Bók: Kristnihald Undir Jökli
    Haldór Laxness: Kristnihald Undir Jökli
    Ein af örfáum skyldulesningabókum í íslensku sem mér fannst virkilega þess virði að lesa. Mér fannst hún góð og hana nú.
    *****
  • Bók: Like the Flowing River
    Paulo Coelho: Like the Flowing River
    Aldrei á ævinni hef ég orðið fyrir jafn miklum og sýnilegum áhrifum út af einni bók. Eftir þessa bók var ég bara svo hooked á Paulo að ég varð að skrifa honum e-mail og þakka honum innilega fyrir að hafa skrifað hana. Hann svaraði mér meira að segja og var mjög almennilegur og nice. Og ef þið lesið his biography þá er það ekkert lítið sem þessi maður hefur gengið í gegn um. Það er æðislegt að geta lesið svona innblásna bók eftir mann sem er virkilega lífsreyndur. Það besta við þessa bók er að manni finnst aldrei talað niður til manns þegar maður les þau ráð sem höfundurinn gefur. Þessi náði beint að hjartarótum og ég ætla mér að lesa hana svona 200.000 sinnum í viðbót, helst oftar :)
    *****
  • Bók: The Picture of Dorian Grey
    Oscar Wilde: The Picture of Dorian Grey
    Þetta er bara frábær bók enda er Oscar Wild í miklu uppáhaldi hjá mér bæði sem rithöfundur og manneskja. :)
    *****

Bloggvinir

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Spurt er

Hvernig ertu?

Fólk

Vinir mínir

Hér eru nokkrir af nánustu vinum mínum, lesið það sem þeir hafa að segja!

Ég á öðrum bloggum

Hér er að finna önnur blogg þar sem ég held til, manneskja með svona marga persónuleika getur ekki látið sér nægja eitt blogg.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlist

Video

  • Christina D'Avena - KOR - Sigla-Johnny è quasi magia
    La sigla che ti da i brividi. KOR was so one of my many favorites back in the day and this is the beautiful theme song that I loved when I was itty bitty and it still stays with me as a gazillion other italian kids.
    *****


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband