23.6.2008 | 17:49
Ekkert nema endalaus gleði...
Jæja, þá verða allir að kaupa moggann á fimtudaginnn. Af hverju? Af því það verður mynd af mér og Unu í honum...af hverju? Af því að það var viðtal við okkur út af innkaup.net!
Já svona er þetta, maður bara orðinn frægur, eða þannig sko. Í dag fengum við svo nafnspjöldin úr prentun og allt í góðu þar, hins vegar vildi ég að þetta færi að skila af sér einhverjum almennilegum peningum, því annars er ekki víst að maður geti verið í þessu einu og sér mikið lengur.
Á Mánudaginn næsta þarf ég nenfilega að funda á Borgum og...ja...borga. Af því að þeir ætla sér að vera búnir að laga allt í íbúðinni minni fyrir þann tíma og þar sem ég hef lifað á loftinu einu saman seinustu hmm... 6 mánuðina, þá er einfaldast að segja að það vantar svolítið uppá þá upphæð sem ég á að láta þá hafa. Því verður samt kippt í liðinn á morgunn, það verður ekki fjötur um fót manni neitt lengi, en það gæti farið svo að ég þurfi að minnka vinnuna fyrir innkaup.net til að koma til móts við fjárhagslegar þarfir mínar og fá mér eitthvað hlutastarf á móti.
Ég hef þegar sótt um eitt tímabundið starf, en hef ekki heyrt meira frá þeim þannig ég veit ekki hvernig það á eftir að fara. Vonandi sé ég eitthvað fleira sem ég get gert samhliða innkaupum, svo maður þurfi ekki að fara í neitt skuldafen (ég hef hingað til getað haldið mig nokkuð utan við allt þesslags). En á meðan þetta er að ganga upp þá er ég ánægð og ég veit ekki af hverju en ég er svo MIKLU MIKLU MIKLU minna stressuð en ég var þegar ég var í öruggri vinnu með ágætis launum. Mér finnst æðislega gaman í vinnunni þar sem þetta er frábærlega skapandi og fjölhæft starf.
Í þessari viku vinnum við hörðum höndum að því markmiði að opna MMP síðuna, eftir það munum við nefnilega starta nýjum innflutning til landsins og það á eftir að ganga mjög smooth, því yfirmaðurinn okkar er nefnilega vel kunnug innflutningsgeiranum og hefur áður átt og rekið fyrirtæki af því taginu.
Við erum líka búin að fá leyfi fyrir afnotum á eldhúsi fyrir Baxter og þá þurfum við bara að fá framleiðslu- og söluleyfi, það eru mismunandi skoðanir á því hversu erfitt það á eftir að reynast.
Annað í fréttum er svo sem ekkert, ég fór í smá road-trip með Unu og hennar familíu seinustu helgi, fór á fjölskylduhelgi á Blkönduósi með þeim, það var æðislega gaman and I ruled the cool when it came to bowling on the Wii computer thingy...I just rock. ;) hehe grín. Svo var auðvitað 17. júní þar áður og ég, Una og Orlyn fórum í smá leiðangur að leita að góðri tónlist. Eitthvað var lítið um svoleiðis þannig að við keyptum okkur ís og candy floss og hlustuðum bara á lélega tónlist í staðinn. En það var samt gaman að komast aðeins út og hrista af sér slenið. Nú bíð ég bara spennt og sé til hvernig þetta gengur allt hjá okkur, þetta er komið á það stig að nú má búast við að þetta fari að ganga upp. Ég hef alltaf sagt að þetta eigi eftir að taka sinn tíma, en ég held barasta að sá tími sé bara kominn. :) :) :)
Jæja knúsulíusarnir mínir, verið glöð og sæl og rjóð í kinnum með blik í augum og allt það (einstaklega krípí setning), ég er farin að gera eitthvað viturt.
Ta, Choc Blonde Alex.
Um bloggið
Il Mio Quinto Senso e Mezzo
Bækur
Bækur
Nokkrar af mínum uppáhalds...það breytist samt mjög oft.
-
: Brennu-Njáls Saga
Þetta er önnur skyldulesningarbók í íslensku sem mér fannst mjög áhugaverð og hreint út sagt skemmtileg. Það verða allir íslendingar að lesa hana...bókstaflega...hahaha!
-
: The Three Musketeers
Þessa bók las pabbi minn fyrir mig á tímabilinu 12-14 ára, nokkra kafla alltaf þegar ég kom til hans á sumrin. Þarna var hann kominn með krabbamein og var svo hás að hann hljómaði eins og sjóræningi með kvef en honum þótti bara svo vænt um að fá að lesa fyrir mig að hann neitaði að gefast upp. Já, ég á ljúfar minningar af þessari bók en það er ekki eina ástæðan fyrir að hún er í uppáhaldi heldur er þetta barasta snilldar vel skrifað og maður festist alveg í henni þegar maður er byrjaður. Spennandi og ævintýraleg, einfaldlega allt það besta í einni bók.
-
: Kristnihald Undir Jökli
Ein af örfáum skyldulesningabókum í íslensku sem mér fannst virkilega þess virði að lesa. Mér fannst hún góð og hana nú.
-
: Like the Flowing River
Aldrei á ævinni hef ég orðið fyrir jafn miklum og sýnilegum áhrifum út af einni bók. Eftir þessa bók var ég bara svo hooked á Paulo að ég varð að skrifa honum e-mail og þakka honum innilega fyrir að hafa skrifað hana. Hann svaraði mér meira að segja og var mjög almennilegur og nice. Og ef þið lesið his biography þá er það ekkert lítið sem þessi maður hefur gengið í gegn um. Það er æðislegt að geta lesið svona innblásna bók eftir mann sem er virkilega lífsreyndur. Það besta við þessa bók er að manni finnst aldrei talað niður til manns þegar maður les þau ráð sem höfundurinn gefur. Þessi náði beint að hjartarótum og ég ætla mér að lesa hana svona 200.000 sinnum í viðbót, helst oftar :)
-
: The Picture of Dorian Grey
Þetta er bara frábær bók enda er Oscar Wild í miklu uppáhaldi hjá mér bæði sem rithöfundur og manneskja. :)
Bloggvinir
Spurt er
Fólk
Vinir mínir
Hér eru nokkrir af nánustu vinum mínum, lesið það sem þeir hafa að segja!
-
Ingi
Ingus mine friend. -
Harpa á myspace
Segir sig sjálft. -
Harpa bloggar
Hér bloggar mesti hello-kitty fan í heimi :D -
Sandra á myspace
Sandy girl -
Sandra
The single most clever person walking the planet. -
Marta á Myspace
MARRRTAAAA!!!!!!! RAHHHH!!!!!! -
Marta
I love you my cowsnooze! Þessi stelpa verður rithöfundur með meiru! I promise! -
Una á myspace
rockstar in the making
keiralechat
Ég á öðrum bloggum
Hér er að finna önnur blogg þar sem ég held til, manneskja með svona marga persónuleika getur ekki látið sér nægja eitt blogg.
-
Ég á Myspace
Lucidamente -
Socialmalady
You Can Fall Slave to the Universe Inside a Mind
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja ljúfust! Gott að lífið er eintóm gleði, en hér vantar eitthvað nýtt!!
Hafðu það sem best og skemmtu þér vel í skólanum
bless í bili
mamma
Guðrún S. Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 16:08
MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ!MJÁÁÁÁÁÁÁÁ!
KITTY SPAM!!!!!!
Martzor (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.